„Mér finnst að það ætti að vera jafnrétti í þessu. Það er ekki verið að slá upp fyrirsögnum jafnmikið þegar karlmenn byrja með yngri konum,“ segir Svala Björgvinsdóttir tónlistarkona í nýjasta hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar. Smartland fjallar um viðtalið við Svölu.
Á dögunum var greint frá því að Svala væri komin með nýjan kærasta. Sá heitir Kristján Einar Sigurbjörnsson og er fæddur árið 1998 en sjálf er Svala fædd árið 1977. Nokkuð var gert úr því í fjölmiðlum að mikill aldursmunur væri á parinu.
„Það er ennþá eins og það sé eitthvað tabú að konur séu með yngri mönnum. Ef að fólk er fullorðið og vill hittast er það ekki bara besta mál? Ég skil ekki alveg þennan mikla áhuga á því hvern ég er að deita. Það er bara ekkert áhugavert við það. Hverjum er ekki drullusama,“ segir Svala.
Í viðtalinu við Sölva ræðir Svala meðal annars um tónlistarferilinn, árin í Bandaríkjunum og tímann eftir að hún kom heim til Íslands.