Svala missti manninn sinn skömmu áður en ofsóknirnar hófust í nóvember

„Ég veit að ég er rosalega sterk og dugleg en það er allt öðruvísi að upplifa þetta einn. Að vera einn á þessum stað að vernda allt sem maður á,“ sagði Svala Lind Ægisdóttir í viðtali í Íslandi í dag í gærkvöldi. Vísir fjallar um viðtalið.

Nokkuð hefur verið fjallað um ofsóknir sem Svala og synir hennar hafa sætt af hálfu manns á þrítugsaldri í vetur. Allt saman byrjaði þetta í nóvember þegar annar sonur hennar vann á sama stað og fyrrverandi kærasta eltihrellisins. Maðurinn fór að gera sér upp allskonar hugmyndir og fór svo að sonur hennar var frelsissviptur þann 23. nóvember og beittur ofbeldi.

Frelsissviptingin var kærð til lögreglu en við það virðist maðurinn hafa tvíeflst. Lýsir Svala því í viðtalinu að maðurinn hafi skorið á dekkin á bílnum, brotið rúðurnar í honum og áreitt fjölskylduna, til dæmis með því að banka upp á og ganga fram hjá húsinu og vinnustaðnum. Þá hafi hann hringt og hótað lífláti og kveðst Svala eiga upptökur af því.

Svo virðist vera sem mikið þurfi til að taka svona menn úr umferð, en þess skal getið að maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær vegna ýmissa brota.

Í viðtalinu kom fram að ofsóknirnar hafi í raun byrjað í miðju sorgarferli, en Svala missti eiginmann sinn, Ómar Friðleifsson, úr krabbameini fyrir tveimur árum. Var hún í raun ekki búin að vinna úr sorginni þegar ofsóknirnar hófust.

„Þetta hefur náttúrulega þau áhrif, þegar maður er einn, að ég er ekki lengur með manninn minn sem verndaði mig áður og var til staðar fyrir mig áður. núna er ég ekki með hann. Mér fannst ég rosalega vængbrotinn af því að ég hafði ekki manninn til að vernda mig á heimilinu og fjölskylduna.“

Innslagið og umfjöllun Vísis um málið má sjá í heild sinni hér.