Ryotaro Suzuki, samfélagsmiðlastjarna og sendiherra Japans á Íslandi, er duglegur við að sökkva sér ofan í íslenska dægurmenningu og hefur hann upp á síðkastið verið að lesa barnabókmenntir. Þá er hann líka duglegur við að horfa á íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Gerði hann uppgötvun, sem við Íslendingar tökum sem sjálfsögðum hlut.
Suzuki hefur oft horft á kvikmyndina Mýrina frá árinu 2006. Í aðalhlutverki er Ingvar E. Sigurðsson.
„Þetta er ekki grínmynd, en ég er búinn að horfa á þessa mynd nokkrum sinnum,“ segir Suzuki á Twitter.
„Fyrir ári síðan vissi ég ekki að þessi leikari væri til, Ingvar E. Sigurðsson. Nú sé ég þennan leikara út um allt. Meira að segja í fyrsta þætti Verbúðarinnar.“
Bentu svo margir honum á að horfa á Engla Alheimsins, virðist sem Suzuki sé nú þegar búinn að horfa á hana. „Hann er svo ungur í henni og virkar alveg geðveikur og svalur.“