Sunneva svarar fyrir sig: Eins og sumum líði betur með því að tala aðra niður

„Þegar vegið er að manni opinberlega, vinnu manns, hugmyndum og hæfileikum er ekki annað hægt en að svara fyrir sig,“ segir Sunneva Ása Weisshappel, leikmyndahönnuður Netflix-þáttanna Kötlu og kærasta Baltasars Kormáks, leikstjóra þáttanna.

Sunneva segir að í nýlegri frétt sé því haldið fram að henni sé ranglega veittur heiðurinn af leikmyndahönnun Kötlu. Vísir og Hringbraut fjölluðu í gær meðal annars um Facebook-færslu Arnars Orra Bjarnasonar sem er einn þeirra sem komu að gerð leikmyndar þáttanna. Lýsti hann yfir óánægju sinni með það að fyrirtæki hans, Irma, hafi ekki verið gefið kredit í kreditlista þáttanna.

Sjá einnig: Arnar ósáttur: „Algjört virðingaleysi þessa fyrirtækis í garð vinnandi fólks“

„Í lífi mínu og starfi hef ég kynnst á eigin skinni lygum, rógburði, afbrýðissemi og almennri illkvittni. Því miður er eins og sumum líður betur með sjálfan sig með því að tala aðra niður. Ég vildi óska þess að svo væri ekki, en það eina sem vert er að gera er að fara ekki niður á það plan og tala sínu máli,“ segir Sunneva í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í morgun.

Í færslu sinni segir hún að það sé oft þannig að þegar eitthvað fær mikið lof þá vilji margir eigna sér heiðurinn.

„Heimir Sverrisson réð sig sem leikmyndahönnuður Kötlu og ég var ráðin sem set decorator, sameiginlega skapa þessi störf listræna stefnu leikmyndarinnar í samstarfi við leikstjóra. Vegna listrænna ágreininga við leikstjóra þá gekk hann burt frá verkefninu í undirbúningi þess. Í kjölfarið tók ég við starfi leikmyndahönnuðar. Það var ekki auðveld ákvörðun en ég vissi vel að þetta var áskorun sem ég gæti staðist, enda hef ég sterka listræna sýn og hef hlotið mikla þjálfun í stórum leikhúsverkefnum á erlendri grundu. Að auki var verkið einstaklega spennandi og bauð upp á nýstárlegan myndheim og djarfa túlkun á myndmáli og þar liggur styrkur minn,“ segir Sunneva.

Sunneva útskýrir svo hvaða breytingum leikmyndin tók eftir að hún tók við verkefninu.

„Það sem risið var af leikmyndinni þegar ég tók við verkefninu voru þrjú ókláruð interior sett í Gufunesi. Það var allt endurhannað sem hægt var nema það sem handritið krafðist. Sagan gerist á Vík í Mýrdal, allt er þakið ösku, bærinn stendur í eyði og þau sett sem höfðu verið valin var notast við, enda valin að mestu af leikstjóra. Heimir kom ekki inn á eitt einasta sett sem myndað er í Kötlu. Það gefur því auga leið að ætla að eigna honum höfundarréttinn er ekkert annað en atvinnurógur,“ segir Sunneva.

Hún bætir svo við að hann hafi sjálfur, í skrifuðu bréfi, farið fram á að vera ekki nefndur í kreditlista verkefnisins því það hafi tekið aðra listræna stefnu en hann hafði séð fyrir sér. Við þeirri beiðni var orðið og þar liggi kjarni málsins.

„Þar af leiðandi veita framleiðendur mér kreditið því ég vann verkið og hann kærði sig ekki um það. Það er viðurkennt í þessum bransa að ef fólk yfirgefur verkefnið, svo ekki sé talað um áður en tökur hefjast, þá á viðkomandi ekki tilkall til kredits. Það er ekki mikil reisn yfir því að ætla að eigna sér heiðurinn eftir að verkið er komið út, og taka þannig enga ábyrgð á sínum eigin ákvörðunum. Þessi samningur sem hann samþykkir og Irmu menn veifa kveður sérstaklega til um að það sé í valdi framleiðslunnar hvort hann sé kreditaður eða ekki. Ég hefði deilt titlinum með honum ef hann hefði stigið aftur inn, sem hann gerði ekki. Þar með hef ég svarað ásökun Arnars (samstarfsmanns Heimis og meðeiganda Irmu) sem hann birti á feisbúkk og fór kjölfarið í fjölmiðla, um að ég sé ranglega titluð fyrir leikmyndahönnun Kötlu.“

Sunneva segir að það sé ekki að ástæðulausu að Katla sé núna í fimmta sæti í heiminum yfir vinsælasta sjónvarpsefni Netflix.

„Þetta er árangur sem allir sem komu að þessu verki mega vera stoltir af. Að lokum við ég þakka minni deild fyrir mikla listfengni, þrautseigju, áræðni og vel unnin störf. Ég er ákaflega stolt af hafa tekið þátt í að skapa þetta listaverk með ykkur og hlakka til að takast á við næstu verkefni.“