Sunna Karen varð að Karen Kjartans sem varð að Karen Ingólfs

Sunna Karen Sigu­rþórs­dóttir fréttamaður mætti í Morgunút­varp Rásar 2 í morgun þar sem hún ræddi verð­lag á innan­lands­flugi. Mann­líf skaut því upp í net­frétt en setti mynd af Karen Kjartans­dóttur þess í stað en titlaði hana sem Karen Ingólfs­dóttur.

Karen Kjartans­dóttir gerir stólpa­grín að málinu öllu saman á Face­book síðunni sinni. Þar má sjá ó­upp­færðan hlekk frá frétt Mann­lífs, sem nú hefur lag­fært myndina og sett Sunnu Karen inn í stað Karenar Kjartans.

„Ehe ég er ekki Karen Ingólfs og hún vinnur ekki á At­hygli og var ekki í út­varps­spjalli, frekar en ég var í út­varps­spjalli, heldur Sunna Karen Sigur­þórs­dóttir. Þetta svo­kölluð alslemma,“ skrifar Karen á léttu nótunum á Face­book.

„Því­líkt OKUR! Á­fram Neytanda-Karen Ingólfs!“ skrifar Sunna Karen við færsluna eitur­hress að vanda. Í Morgunút­varpinu ræddi Sunna hve dýrt flugið til Egils­staða er.

„Það er ó­dýrara að kaupa flug til Marokkó,“ sagði Sunna. Hún ætlaði að kaupa tvo miða og gang­verðið á hverjum miða 47.500 krónur. Miðarnir hefðu kostað hana 95 þúsund.