Kynfræðingnum Siggu Dögg hafa borist kvartanir á starfsmanni í kvennaklefa Salalaugar í Kópavogi sem er sögð ganga hart að sundlaugargestum um að sápa sig að neðan, nánar tiltekið á kynfærunum.
Fréttablaðið fjallar um málið.
Sigga Dögg segir að í raun sé það mikill missklingingur að fólk eigi að þvo á sér kynfærin með sápu.
Þetta er mega misskilningur. Ég hef alveg heyrt um svona mál frá öðrum sundlaugum, en ég hef aldrei fengið svona margar kvartanir frá einni sundlaug áður.
Ég hef heyrt af svona í kynfræðslu og hef farið með svona mál til bæjarstjórna og beðið um að það sé tekið á þessu og það þarf algjörlega að samræma þetta því það hafa fleiri sveitarfélög haft samband við mig og vilja kanna hvernig þetta er hjá þeim því þetta skiptir ótrúlegu máli,“ segir Sigga Dögg við Fréttablaðið og bætir við:
„Það eru ótrúlega margar sögur komnar inn af því að fólk veigrar sér við að fara til dæmis í þessa sundlaug út af þessu viðmóti og svo eru börn hrædd, þetta er alveg glatað.“
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins hér.