Sundhöllin á Selfossi hefur lýst yfir stríði gegn þeim sem nota nikótínpúða eða annars konar púða undir vör í lauginni. Ástæðan er sú að sóðaskapur hefur aukist mjög samhliða aukinni notkun púðanna.
„Kæru sundlaugargestir. Notkun munntóbaks í sundlauginni hjá okkur á Selfossi er vaxandi vandamál og ætlum við að fara í átak til að reyna að sporna við þessu. Af þessu er mikill sóðaskapur bæði á sundlaugarsvæðinu og fyrir utan sundhöllina,“ segir í færslunni sem birtist á Facebook-síðu Sundhallarinnar.
Þá er tekið fram að starfsmenn hafi tekið púða af ungum börnum sem hafa verið að velta þessum púðum milli fingranna og spá í því hvað þetta er.
„Blessunarlega hefur ekki neitt barn stungið þessu upp með tilheyrandi hættu fyrir barnið. Vandamálið er að nýjustu púðarnir t.d. Kickup eru orðnir svo nettir og það sést illa hvort fólk er með þetta í munninum. Kæru sundlaugargestir við þurfum ykkar aðstoð við að sporna við þessari þróun.“
Tekið verður hart á þeim sem nota púðana í sundlaugunum, en þeir eru stundum kallaðir baggarar:
„Sá sem verður staðinn að því að nota munntóbak á sundlaugarsvæðinu, hvort sem það er nikotínpúði, íslenskt munntóbak eða þ.h. verður strax vísað upp úr lauginni, viðkomandi verður ekki gefin kostur að "losa" Átakið hefst núna.“
Það er víðar en á Selfossi sem þetta er vandamál eins og meðfylgjandi tíst sýnir glöggt:
Í steinapotti Laugardalslaugar hafði einhverjum sóðasjomla þótt alveg gráupplagt að losa sig við nikótínpúðann sinn. Ekki einn, heldur ÞRJÁ. Þessu viðbjóði máttu fjölskyldur svo lauga sig upp úr á laugardagsmorgni. Svona drulluhala ætti að hnakkskjóta bakvið skúr.
— S. Mikael Jónsson (@S_Mikael_J) March 6, 2021
Kæru sundlaugagestir Notkun munntóbaks í sundlauginni hjá okkur á Selfossi er vaxandi vandamál og ætlum við að fara í...
Posted by Sundhöll Selfoss on Föstudagur, 19. mars 2021