„Sumt er svo vit­laust að það á enga vörn skilið“

„Ég hef kynnst fólk í gegnum tíðina sem kann að tala með rassinum en mér finnst það alveg merki­legt af­rek út af fyrir sig að læra að skrifa með rassinum,“ segir Alexandra Briem, for­seti Borgar­stjórnar um grein Írisar Er­lings­dóttur sem birtist í Morgun­blaðinu á dögunum.

Greinin ber titilinn „Sið­ræna trans­­gátan“ þykir mjög um­deild en í henni full­yrðir Íris meðal annars að kyn­­gervi trans ein­stak­linga sam­ræmist ekki líf­­fræði­­legu kyni þeirra. Íris hefur meðal annars verið sökuð um hatur­s­orð­ræðu gegn trans fólki í kjöl­farið.

„Af­sakið orð­bragðið, en sumt er svo vit­laust að það á enga vörn skilið. Þessi manneskja á rétt á sinni skoðun og rétt á því að tjá hana. En hún á ekki endi­lega rétt á rými fyrir hana ekki frekar en fólk sem kýs að veita því rými. Hún á heldur ekki rétt á því að þessu sé tekið eins og um ein­hvern sann­leika sé að ræða,“ segir Alexandra.

Alexandra Briem var gestur Margrétar Erlu Maack á Frétta­vaktinni á Hring­braut í kvöld. Horfðu á við­talið í heild sinni hér að neðan: