Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands má búast við sól og allt að 14 gráðu hita í höfuðborginni á morgun. Á þriðjudaginn mun sólin láta sjá sig um nær allt land og nær hitinn í höfuðborginni upp í 15 gráður.
Í dag verður hæg breytileg átt, en austan gola eða kaldi syðst á landinu. Skýjað með köflum og hiti 8 til 14 stig, en allvíða léttskýjað norðanlands með hita að 18 stigum.
Áfram hægur vindur á morgun og víða bjartviðri, en þó eru allvíða líkur á þokubökkum við ströndina eins og algengt er þegar milt loft liggur yfir landinu. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast inn til landsins.
Þá verður hæg austlæg eða breytileg átt. Víða léttskýjað, en þokubakkar við norður- og austurströndina. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á suðvestanverðu landinu.
Á miðvikudag verður áfram hæg austlæg eða breytileg átt og bjartviðri, en skýjað og lítilsháttar rigning eða súld austantil á landinu. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðvesturlandi.
Þá má búast við hægri suðlægr eða breytilegri átt á fimmtudaginn. Svolítil væta á vestanverðu landinu, en yfirleitt þurrt og bjart annars staðar. Hiti 11 til 17 stig.