„Að óbreyttu eru því töluverðar líkur á vinstri stjórn eftir kosningar,“ segir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, á bloggsíðu sinni.
Styrmir gerir þar nýja könnun Gallup um fylgi flokkanna að umtalsefni en að sögn Styrmis bendir hún ekki til þess að kórónuveirufaraldurinn sé að koma miklum hreyfingum á fylgi flokkanna það sem af er.
„Það eru engar meiri háttar breytingar frá könnunum undanfarna mánuði. En í ljósi þess að nú er aðeins ár til kosninga má búast við að þessum könnunum verði gefinn meiri gaumur en undanfarin misseri,“ segir Styrmir og bætir við að könnunin sé enn ein staðfesting á því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi misst verulegan hluta af sínu fylgi þó hann sé enn stærsti flokkurinn.
„RÚV lagði áherzlu á í sínum fréttum af þessari könnun að ekki væri hægt að mynda þriggja flokka ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins. En það breytir ekki því að það er hægt að mynda fjögurra flokka ríkisstjórn án hans,“ segir hann og nefnir að undanfarnar vikur hafi komið fram sterkar vísbendingar um að Framsóknarflokkurinn sé farinn að horfa til vinstri eins og áður hefur gerst í sögu flokksins.
„Í því felast hugmyndir um samstjórn fjögurra flokka, þ.e. Framsóknarflokks, Samfylkingar, Vinstri grænna og fjórða flokks. Þá er helzt talað um Pírata.“
Styrmir segir að ein ástæða þess að Framsókn sé farin að horfa til vinstri sé sú að forystumenn flokksins telji það vænlegt til að endurheimta það fylgi sem fór þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, stofnaði Miðflokkinn.
„Á vinstri kantinum er áreiðanlega meiri vilji til samstarfs heldur en var þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð. Að óbreyttu eru því töluverðar líkur á vinstri stjórn eftir kosningar. Hvernig ætlar Sjálfstæðisflokkur að bregðast við þeirri stöðu? Er ekki kominn tími til að ræða mikið fylgistap á vettvangi flokksins og hvernig við skuli bregðast?“