Styrmir varar Bjarna við að selja Íslandsbanka

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum, varar Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann flokksins, við því að selja Íslandsbanka.

Bjarni hefur sagt að til standi að hefja útboð Íslandsbanka í júnímánuði, en stefnt er að sölu á allt að 35 prósenta hlut í bankanum.

Styrmir gerði kosningabaráttuna að umtalsefni í grein sinni í Morgunblaðinu um helgina, en innan við fjórir mánuðir eru nú til kosninga. Styrmir segir að innan Sjálfstæðisflokksins sé vilji til að halda samstarfinu við VG og Framsóknarflokk áfram þó ekki ríki samstaða um öll mál.

„Það hjálpar hins vegar ekki til andstaða innan þingflokksins við hálendisþjóðgarð og neikvæður tónn í garð Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra af því að hún hefur aðra afstöðu til heilbrigðismála en þingmennirnir í þeim þingflokki. Allt á þetta eftir að skýrast í kosningabaráttunni en óráðlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að ganga út frá því sem vísu að Framsókn og VG vilji halda samstarfinu áfram,“ segir Styrmir sem nefnir svo fleiri atriði sem gætu haft áhrif á kjósendur.

„Meðal þeirra er undirliggjandi gremja vegna þess hvernig nýtingu auðlindarinnar í hafinu er háttað. Þótt ábyrgðin á því sé á vinstri kantinum, þar sem það var vinstristjórn sem gaf framsalið frjálst án annarra aðgerða, er Sjálfstæðisflokknum kennt um þótt hann hafi haft forystu um að taka upp auðlindagjald. Verði ekkert að gert mun þessi djúpstæða gremja brjótast fram. Það eru meiri líkur en minni á að þessi reiði meðal kjósenda finni sér einhvern farveg í kosningabaráttunni. Hvernig það gerist getur byggzt á öðrum umræðum, sem tengjast nýtingu auðlindanna.“

Styrmir nefnir svo yfirvofandi sölu á Íslandsbanka.

„Geri ríkisstjórnin alvöru úr því að hefja sölu á hlut í Íslandsbanka getur það haft áhrif á kosningabaráttuna. Það má vel vera að þær fréttir hafi ekki borizt inn fyrir veggi Alþingis en veruleikinn er sá að fólk treystir stjórnmálamönnum ekki fyrir sölu bankanna eftir það sem á undan er gengið. Bankasala svo skömmu fyrir kosningar getur því haft örlagaríkar afleiðingar.“