Styrmir um Donald Trump: „Sýndar­mennskan er yfir­gengi­leg“

Styrmir Gunnars­son, rit­stjóri Morgun­blaðsins til 36 ára, segir að Banda­ríkin séu for­ystu­laust ríki. Ó­eirðir hafa verið í borgum vítt og breitt um Banda­ríkin vegna dauða Geor­ge Floyd í síðustu viku og segir Styrmir slíkir at­burðir hafi ekki orðið þar í 50 til 60 ár.

„Ekki batnar á­standið í Banda­ríkjunum. Í gær talaði Trump til þjóðarinnar og hótaði að senda banda­ríska her­menn á banda­rískan al­menning. Gekk síðan til kirkju, eftir að leiðin að henni hafði verið rudd með tára­gasi og veifaði Biblíunni. Sýndar­mennskan er yfir­gengi­leg,“ segir Styrmir í færslu á bloggsíðu sinni.

Styrmir segir að Trump virðist ekki hafa dottið í hug að skyn­sam­legra væri að grípa til að­gerða gegn þeim ríkjandi ósið banda­rískra lög­reglu­manna að mis­nota að­stöðu sína gegn svörtu fólki.

„Banda­ríkin eru þessa stundina for­ystu­laust ríki. Það heyrist lítið sem ekkert frá demó­krötum. Hvar eru þeir? Það er ekki bara al­var­legt mál fyrir Banda­ríkja­menn sjálfa - heldur heims­byggðina alla. Á­tökin á milli al­ræðis­ríkja og lýð­ræðis­ríkja ein­kenna í vaxandi mæli sam­skipti ríkja á al­þjóða­vett­vangi. Það reynir á kjós­endur vestan hafs í nóvember að breyta þessari stöðu,“ segir Styrmir.

Styrmir fjallaði einnig um stöðuna í Banda­ríkjunum í færslu í gær og þar velti hann fyrir sér stöðunni innan Demó­krata­flokksins sem hafi ekki tekist að finna sann­færandi for­seta­efni. Styrmir segir þó að efna­hags­legar þrengingar vegna kórónu­veirunnar gætu gert Donald Trump erfitt fyrir að ná endur­kjöri.

„Hið leiðandi heims­veldi á aug­ljós­lega við innri vanda­mál að stríða, sem gerir því erfitt fyrir að standa undir hlut­verki sínu,“ segir hann.