Styrmir: Þessari spurningu þarf að svara – Af hverju gengur okkur svona illa?

„Ein­hverjir þing­menn þurfa að taka að sér það hlut­verk að spyrja þessarar við­kvæmu og erfiðu spurningar,“ segir Styrmir Gunnars­son, fyrr­verandi rit­stjóri Morgun­blaðsins til ára­tuga, á blogg­síðu sinni.

Styrmir veltir því fyrir sér hvers vegna okkur gengur verr að koma böndum á kórónu­veiruna en öðrum Norður­landa­þjóðum.

„Þetta er vafa­laust við­kvæm spurning en við hljótum sem sam­fé­lag að leita svara við henni. Hlut­falls­tölurnar sýna, að við erum ekki í hópi þeirra, sem bezt gengur heldur í hinum hópnum sem verst gengur,“ segir Styrmir.

Rúm­lega þúsund manns eru nú í ein­angrun með CO­VID-19 hér á landi. 50 smit eða fleiri hafa greinst hér á landi níu daga í röð og er fjór­tán daga ný­gengi innan­lands­smita nú 253,9 á hverja 100 þúsund íbúa.

Styrmir spyr hvort ein skýringin sé sú að við höfum ekki gripið til nægi­lega harðra ráð­stafana.

„Það er erfitt að sjá að sú geti verið skýringin ef að­gerðir hér eru bornar saman við að­gerðir annars staðar. Er skýringin sú að al­mennir borgarar hér hafi ekki tekið pláguna nægi­lega al­var­lega? Það gæti verið. En þetta þarf að ræða á Al­þingi,“ segir hann og bætir við að ein­hverjir þing­menn þurfi að taka málið upp.

„Ætla mætti að ey­þjóð ætti auð­veldara með að koma böndum á veiruna en þjóðir sem byggja lönd, sem liggja að öðrum löndum en svo virðist ekki vera. Hver er skýringin?“