Styrmir spáir óróa og ó­kyrrð í sam­fé­laginu næstu vikur

„Svo mikið at­vinnu­leysi, sem virðist vera fyrir­sjáan­legt á næstu vikum og mánuðum á eftir að verða erfitt og skapa óróa og ó­kyrrð í sam­fé­laginu, þótt öllum sé ljóst að ekki er öðru um að kenna en kórónu­veirunni.“

Þetta segir Styrmir Gunnars­son, fyrr­verandi rit­stjóri Morgun­blaðsins, á blogg­síðu sinni.

Styrmir hefur eðli málsins sam­kvæmt skrifað nokkuð um kórónu­veiruna og á­hrif hennar hér á landi að undan­förnu. Um helgina sagði hann efna­hags­legar af­leiðingar veirunnar ættu eftir að vara í nokkur misseri, jafn­vel út næsta ár. Þá vísaði hann í sér­fræðinga sem telja að heims­byggðin sé að sigla inn í kreppu sem jafnast á við kreppuna miklu fyrir 90 árum.

Styrmir sagði í færslu sinni í gær að að­gerðir ríkis­stjórnarinnar varðandi hluta­störf muni hugsan­lega koma í veg fyrir að at­vinnu­leysið verði meira.

„En þrátt fyrir að skýringarnir liggi fyrir og að tölu­vert sé gert til að draga úr því, mun það koma illa við þá, sem fyrir því verða. Þetta snýst ekki bara um mikinn tekju­missi, heldur koma marg­vís­leg önnur fé­lags­leg á­lita­efni við sögu,“ segir hann.

Styrmir veltir því fyrir sér hvort verka­lýðs­fé­lögin og skóla­kerfið geti komið til skjalanna með því að setja upp nám­skeið af ýmsu tagi. „Sem geti auð­veldað þeim, sem missa vinnuna hvers­dags­lífið og um leið gert þá hina sömu hæfari til að snúa til sinna fyrri starf með batnandi tíð.“