Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum til margra ára, segir að fátt hafi komið á óvart í niðurstöðum könnunar sem Fréttablaðið birti í morgun um fylgi flokkanna. Eitt hafi þó vakið sérstaka athygli.
„Í könnuninni kemur fram að í yngsta aldurshópnum - 18-24 ára - mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 32% fylgi,“ bendir Styrmir á en hann hefur áður viðrað áhyggjur sínar, fyrir hönd flokksins, á litlu fylgi meðal ungs fólks.
Styrmir segir í pistli á heimasíðu sinni að þessar tölur séu allt aðrar en þær sem birst hafa í skoðanakönnunum á undanförnum árum. Því hljóti þær að vekja athygli, að minnsta kosti meðal Sjálfstæðismanna.
„Þær benda til að það sé ekki allt neikvætt í stöðu flokksins en fylgi hans mælist 22,9% í þessari könnun. En um leið vekja þessar tölur spurningar um, hvort fylgi flokksins meðal eldri kjósenda sé að dala og ef svo er, þá hvers vegna.“
Styrmir segir að kominn sé tími á að þeir sem annast skoðanakannanir á fylgi flokkanna birti ítarlegri upplýsingar um niðurstöðurnar, til dæmis fylgi í ákveðnum aldursflokkum, eftir kyni, búsetu, menntun og fleira.