Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir að kominn sé tími á opnar umræður innan Sjálfstæðisflokksins um fylgistap hans á undanförnum árum.
Styrmir gerir nýjan Þjóðarpúls Gallup að umtalsefni á heimasíðu sinni, en eins og Hringbraut greindi frá í morgun er Sjálfstæðisflokkurinn langstærsti flokkur landsins með 22,8% fylgi. Á eftir Sjálfstæðisflokknum koma Samfylkingin (14,7%), Píratar (13,7%), Vinstri græn (12,6%) og Viðreisn (10,6%).
Þrátt fyrir ágæta stöðu Sjálfstæðisflokksins, að minnsta kosti með tilliti til fylgis annarra flokka, er það staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst mikið fylgi á undanförnum árum, eða nálægt 15 prósentustigum á rúmum áratug eins og Styrmir bendir á.
„Þessi veruleiki hefur lítið sem ekkert verið ræddur á opnum fundum í Valhöll, þótt hann hafi vafalaust verið ræddur bæði í þingflokki og miðstjórn,“ segir Styrmir en til stendur að halda landsfund Sjálfstæðisflokksins í nóvember. Vegna faraldursins gætu samt orðið breytingar þar á.
Styrmir segir að hvort sem landsfundurinn verður þá eða síðar sé tími kominn á opnar umræður innan flokksins um fylgistapið og viðbrögð við því.
Styrmir segir svo í lok pistilsins að það megi teljast líklegt að eitt helsta markmið margra vinstri flokka í næstu kosningum verði að útiloka flokkinn frá aðild að ríkisstjórn.
„Það verður auðveldari leikur verði úrslit þingkosninga áþekkar skoðanakönnunum síðustu ára.“
Samkvæmt niðurstöðum Þjóðarpúlsins nemur samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja: Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks 43,3%.