Styrmir segir að næstu kosningar gætu orðið sögu­legar

„Það gæti því vel farið svo að næstu kosningar verði sögu­legar,“ segir Styrmir Gunnars­son, fyrr­verandi rit­stjóri Morgun­blaðsins, í pistli á blogg­síðu sinni.

Styrmir þekkir ís­lensk stjórn­mál betur en margir og í pistlinum veltir hann fyrir sér næstu þing­kosningum sem haldnar verða á næsta ári. Ó­víst er þó hve­nær kosningar fara fram, í fyrsta lagi vorið 2021 en í síðasta lagi haustið 2021. Styrmir segir að frá og með næsta hausti fari kosninga­undir­búningur að setja mark sitt á starf flokkanna.

„Lands­fundur Sjálf­stæðis­flokksins verður næsta haust og undir­búningur próf­kjöra hjá flokkunum mun ein­kenna starf þeirra í vaxandi mæli frá og með sumar­lokum,“ segir hann og bætir við að lík­legt sé að efna­hags­legar af­leiðingar kórónu­veirunnar muni setja mestan svip á kosninga­bar­áttuna. Fleiri mál verði þó í deiglunni.

„Það vakti at­hygli þeirra, sem fylgdust með fundar­höldum Ögmundar Jónas­sonar og Gunnars Smára Egils­sonar um kvóta­kerfið og sjávar­út­vegs­málin al­mennt, hversu fjöl­sóttir þessir fundir voru, bæði sá, sem var í Þjóð­menningar­húsinu fyrir nokkrum mánuðum og þeir sem voru út á landi. Mikil að­sókn að fundum þeirra bendir til að í gras­rótinni sé að búa um sig megn ó­á­nægja með ó­breytta stöðu mála.“

Þá nefnir Styrmir að Jón Bald­vin Hannibals­son, fyrr­verandi for­maður Al­þýðu­flokksins, hafi vakið at­hygli á þeirri leið sem Alaska­búar hafa farið vegna nýtingar auð­linda í al­manna­eigu. Taka þeir gjald fyrir nýtingu þeirra sem rennur í sér­stakan sjóð sem greiðir út til íbúa ár hvert.

„Lík­legt má telja að ein­hver flokkanna taki þessar á­bendingar Jóns Bald­vins upp, sem gæti leitt til mikilla um­ræðna um þennan mála­flokk og haft á­hrif á úr­slit kosninganna. Það gæti því vel farið svo að næstu kosningar verði sögu­legar.“