Styrmir ósáttur við ensku­sletturnar: „Er ekki kominn tími á að gera átak?“

Styrmir Gunnars­son, rit­stjóri Morgun­blaðsins til ára­tuga, horfði á Silfrið á RÚV síðast­liðinn sunnu­dag. Það væri vart í frá­sögur færandi nema fyrir þær sakir að Styrmir gagn­rýnir hversu á­berandi ensku­slettur voru meðal við­mælenda þáttarins í um­fjöllun um for­seta­kosningarnar í Banda­ríkjunum.

„Þeim fylgir gjarnan setningin..."ef ég má sletta". Svarið er nei. Það getur ekki verið erfiðara fyrir Ís­lendinga að nota ís­lenzk orð frekar en ensk,“ segir Styrmir á blogg­síðu sinni og bætir við að samt virðist það færast í vöxt að við­mælendur RÚV noti ensku­slettur í stað ís­lenskra orða. Af því til­efni spyr Styrmir:

„Er ekki kominn tími á að gera átak í að út­rýma þessum "ensku-slettum"?“

Styrmir bendir á að slíkt átak hafi verið gert framan af 20. öld við að út­rýma dönsku­slettunum úr ís­lensku máli. „Nú er ís­lenzka orðið gang­stétt notað um gang­stéttir. Sú var tíðin að talað var um "for­tov" en ekki gang­stéttir,“ segir Styrmir og bætir við að RÚV eigi að ganga á undan með góðu for­dæmi í þessum efnum.