„Fólkið í landinu mun ekki hafa umburðarlyndi fyrir frekari uppákomum af þessu tagi,“ segir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, um mál Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra.
Bjarni sótti sem kunnugt er Ásmundarsal á Þorláksmessu en þar voru um 40 til 50 gestir og sóttvarnareglum ekki fylgt að sögn lögreglu. Margir hafa kallað eftir afsögn Bjarna vegna málsins.
Styrmir segir að titringur sé í pólitíkinni vegna málsins og athygli veki hvað ungliðahreyfingar flokkanna hafa látið mikið að sér kveða. Ómögulegt sé að segja á þessum tímapunkti hvort það eigi eftir að hafa frekari pólitískar afleiðingar.
„Þegar hér er komið sögu og níu mánuðir í kosningar má búast við að hver fari að hugsa um sig. Bæði VG og Framsóknarflokkur hafa átt undir högg að sækja í skoðanakönnunum og gætu hugsað sem svo, að nú sé tækifæri til að rétta sig af,“ segir Styrmir í færslu á heimasíðu sinni.
Hann segir að málin skýrist væntanlega frekar þegar þingflokkar stjórnarflokkanna hafa haft tækifæri til að hittast eftir jólin og þingmenn bera bækur sínar saman um viðbrögð kjósenda. Eitt sé þó ljóst og það er að fólkið í landinu mun ekki hafa umburðarlyndi fyrir frekari uppákomum af þessu tagi.