Styrmir leggur til að sam­eina Reykja­vík og Kópa­vog

„Sveitar­fé­lögin í landinu eru ein­fald­lega of mörg, sem þýðir marg­falda yfir­byggingu, bæði vegna þess að kjörnir full­trúar í sveitar­stjórnum eru marg­falt fleiri en þeir þyrftu að vera og þá jafn­framt sveitar­stjórar og aðrir starfs­menn.“

Þetta segir Styrmir Gunnars­son, fyrr­verandi rit­stjóri Morgun­blaðsins, á blogg­síðu sinni. Þar gerir hann við­tal í Silfrinu á RÚV í gær við Krist­rúnu Frosta­dóttur, aðal­hag­fræðing Kviku banka, að um­tals­efni. Hann segir að einn þátt málsins hafi þó vantað í þær um­ræður, sú stað­reynd að yfir­bygging sveitar­fé­laganna er marg­föld á við það sem hún þyrfti að vera.

Styrmir segir að þetta komi skýrt fram á höfuð­borgar­svæðinu og það liggi beint við að sam­eina Reykja­vík, Sel­tjarnar­nes, Mos­fells­bæ og Kópa­vog í eitt sveitar­fé­lag og Garða­bæ og Hafnar­fjörð í annað. Vissu­lega kæmi einnig til greina að Kópa­vogur sam­einaðist Garða­bæ og Hafnar­firði.

„Sá sparnaður, sem leiddi af slíkri sam­einingu mundi ekki leysa fjár­hags­vanda sveitar­fé­laganna en hann mundi hjálpa til og er sjálf­sagður. Sömu rök eiga auð­vitað við víða á landinu. Það eru engin efnis­leg rök, sem mæla gegn slíkri sam­einingu,“ segir Styrmir.