„Eins og sjá má af þessu geta Íslendingar vel við unað,“ segir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins til margra ára, á bloggsíðu sinni.
„Þótt þeir séu til, sem telja að of langt hafi verið gengið hér í takmörkun á margvíslegri atvinnustarfsemi og öðrum samskiptum fólks vegna veirunnar er þó ljóst af fréttum frá öðrum Evrópulöndum að mun harðar er gengið fram í sumum þeirra en hér,“ segir Styrmir.
Máli sínu til stuðnings vísar hann í umfjöllun þýsku Deutsche-Welle-fréttastofunnar um helgina um aðgerðir víða í Evrópu til að stemma stigu gegn útbreiðslu veirunnar.
Þar kom meðal annars fram að í Danmörku er nú bannað að selja áfengi eftir klukkan 22 á kvöldin og gildir bannið til 2. Janúar næstkomandi. Þá mega ekki fleiri en 10 einstaklingar koma saman.
„Í Póllandi er búið að loka skólum, veitingahúsum og líkamsræktarstöðvum og gildir það bann í tvær vikur. Þar er fólk hvatt til að halda sig heima við og hjálpa gamla fólkinu, hjónavígslur hafa verið bannaðar um skeið og fjöldi fólks sem má fara í verzlanir í einu eða í strætisvagna verið takmarkaður, svo og fjöldi í guðsþjónustum,“ segir Styrmir.
Hann bendir jafnframt á að í Frakklandi hafi verið sett á útgöngubann frá klukkan níu að kvöldi til sex næsta dag og nær það til tveggja þriðju hluta þjóðarinnar.
„Í Belgíu hefur veitingahúsum verið lokað, útgöngubann verið sett á á kvöldin og fjöldi á samkomum takmarkaður sem og fjöldi á menningarviðburðum og bann lagt við áhorfendum á íþróttaviðburðum. Í Þýzkalandi er nú skylt að ganga með grímu á fjölförnum götum, í verzlunarmiðstöðvum og í biðröðum. Í Berlín hefur 1000 lögreglumönnum verið falið að sjá um að því banni sé framfylgt,“ segir Styrmir og bætir við að miðað við þetta geti Íslendingar vel við unað.