Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins frá 1972 til 2008, segir líkur á því að upp úr muni sjóða hér á landi áður en langt um líður.
„Á fyrstu tveimur áratugum lýðveldisins var harka í átökum á vinnumarkaði áberandi. Það mátti stundum ekki miklu muna að kæmi til handalögmála. Á seinni hluta Viðreisnartímans varð breyting á. Þá skapaðist traust á milli stjórnvalda og verkalýðshreyfingar,“ segir Styrmir á bloggsíðu sinni og bætir við að önnur slík þáttaskil hafi orðið með þjóðarsáttarsamningunum tveimur áratugum síðar.
„Nú er augljós hætta á að við hverfum í þessum skilningi til baka til fyrstu áratuga lýðveldisins. Það er skollið á "fordæmalaust" atvinnuleysi, sem á eftir að aukast. Krafan um hækkun atvinnuleysisbóta fær litlar undirtektir á hinum pólitíska vettvangi að öðru leyti en því að lengja tímabil tekjutengdra bóta,“ segir Styrmir sem bætir við að á sama tíma verði hjálparstofnanir varar við aukna eftirspurn eftir mat og fatnaði fyrir börn.
„Fari svo fram sem horfir eru líkur á vaxandi hörku á vinnumarkaði. Verkalýðsfélög munu efna til útifunda á Austurvelli. Það getur soðið upp úr.“