Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, skrifaði áhugaverða hugleiðingu í sunnudagsblað Morgunblaðsins um helgina.
Þar greinir hann frá símtali sem hann fékk fyrir nokkrum misserum frá vini sínum í Sjálfstæðisflokknum. Þar lýsti vinur hans, sem Styrmir kýs að nafngreina ekki, ánægju sinni með það að Styrmir hefði sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum - eða svo taldi hann að minnsta kosti.
„Svar mitt var: Ég hef ekki sagt mig úr Sjálfstæðisflokknum.
Svar hans var: Jú hann […] sagði mér það
Svar mitt var: Það er lygi en segðu mér af hverju hefðir þú verið svona feginn ef…
Svar hans var: Af því að þið Davíð skrifið gegn Sjálfstæðisflokknum.
Styrmir segir það af og frá að hann eða Davíð Oddsson, núverandi ritstjóri blaðsins, hafi skrifað gegn Sjálfstæðisflokknum.
„Við höfum bara aðra skoðun á því hvernig á að haga starfi flokksins. Er það bannað í lýðræðislegum flokki?,“ spyr Styrmir og bætir við að vinnubrögðin í flokknum hafi verið önnur fyrir um 60 árum.
„Þá höfðum við Heimdellingar aðrar skoðanir og létum þær í ljósi opinberlega. Þá var hringt í þáverandi formann Heimdallar, sem hér skrifar, og hann boðaður á fund með Bjarna heitnum Benediktssyni forsætisráðherra. Þegar þangað var komið var fyrst boðið upp á kók og síðan hófst samtalið. Það snerist ekki um skammir heldur málefnalegar umræður. Bjarni heitinn vildi skilja unga fólkið í flokknum hans. Því var svo fylgt eftir af öðru tilefni með því að bjóða öllum formönnum sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í þingflokksveizlu. Í þeirri veizlu sat Bjarni heitinn yfir þáverandi formanni Heimdallar fram undir morgun. Eftir þá nótt átti hann ekki sterkari stuðningsmenn en ákveðinn hóp Heimdellinga,“ segir Styrmir sem segir að fyrrnefnt símtal veki upp ýmsar hugleiðingar.
„Hvernig dettur fólki í hug að láta svona hugsanir í ljósi? Er þetta ríkjandi skoðun innan Sjálfstæðisflokksins? Eru einhverjir þar sem eiga þá ósk heitasta að losna við sem flesta sem hafa aðra skoðun í einhverjum málum?“
Styrmir segir að undanfarin misseri hafi verið líflegir fundir um deilumál eins og orkupakkana. Það sé ekkert nýtt og rifjar hann til dæmis upp að hann og Halldór Blöndal hafi rifist á fundi í Sjálfstæðisfélagi Akureyrar um það hvort leggja ætti vegi með varanlegu slitlagi um hálendið.
„Það sá enginn neitt athugavert við það. Hvað er þá athugavert við það að við Davíð höfum aðrar skoðanir en einhverjir aðrir í ákveðnum málum og erum reyndar ekki alltaf sammála? Reyndar hef ég tekið eftir því á allmörgum fundum sjálfstæðisfélaga á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum að eftir fundina hafa menn dregið mig út í horn og sagt: Hvernig þorir þú að tala svona? Ég hef svarað því til að ég hefði ekki orðið var við neina ógnarstjórn í flokknum. En hvað veldur andrúmslofti, sem kallar fram síkar spurningar? Alla vega bendir það til þess að það gæti verið gagnlegt að ræða þessi mál á opnum fundi í Valhöll,“ segir Styrmir og bætir við að þeir sem vilja losna við óæskilega flokksfélaga ættu kannski að huga að því að gera Melrakkasléttu að Síberíu Íslands.
Styrmir segir að í Sjálfstæðisflokknum eigi engin ein skoðun að vera ríkjandi og þvert á móti eigi margar skoðanir að takast á.
„Svo er gert út um þær á landsfundum og þingflokksfundum og jafnvel með rafrænum kosningum sem allir flokksfélagar eiga rétt á að taka þátt í. Skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi eru ákvörðuð í stjórnarskrá. Það fer Sjálfstæðisflokknum illa að í hans nafni sé reynt að brjóta þau stjórnarskrárákvæði. Þeir sem börðust í kalda stríðinu mega ekki gleyma því fyrir hverju þeir börðust.“