Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir að úrsögn Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur úr þingflokki VG gæti haft víðtækar pólitískar afleiðingar – þó forystusveit VG hafi tekið úrsögninni með stillingu og talið hana fyrirsjáanlega.
Þetta segir Styrmir í pistli á heimasíðu sinni. Rósa Björk sagði skilið við þingflokk VG í gær en ástæðan er brottvísun egypsku barnafjölskyldunnar sem beið í tvö ár eftir úrlausn sinna mála.
„Telja má líklegt að hljómgrunnur sé meðal bæði einhverra flokksmanna en ekki síður almennra kjósenda VG fyrir þeim sjónarmiðum, sem Rósa Björk setti fram í gær vegna úrsagnar sinnar og varða meðferð á málum hælisleitenda hér,“ segir Styrmir sem vísar einnig í frétt Fréttablaðsins í dag þess efnis að í undirbúningi kunni að vera stofnun nýrrar stjórnmálahreyfingar umhverfissinna.
„Það er þess vegna líklegra en hitt að VG stefni í pólitískan ólgusjó á næstu mánuðum í aðdraganda þingkosninga að ári liðnu,“ segir Styrmir.
Hann segir að það geti svo aftur skapað óróa í stjórnarsamstarfinu, sem vísbendingar eru um að sé að verða til. „Þá er átt við að Framsóknarflokkurinn kunni nú, eins og stundum áður, verið byrjaður að horfa til vinstri, þegar kemur að stjórnarmyndun eftir kosningar.“
Styrmir segir að lokum að spenna innan Samfylkingar, sem augljóslega tengist átökum um framtíðarforystu flokksins, og órói innan VG, gætu bent til einhvers uppnáms á vinstri kantinum sem getur haft afleiðingar.