Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, hefur áhyggjur af þróun mála hér á landi. Í pistli á heimasíðu sinni, sem ber yfirskriftina Eru verri tímar að ganga í garð á Íslandi?, fjallar Styrmir meðal annars um þær fréttir að skotið hefði verið á skrifstofur stjórnmálaflokka í Reykjavík.
„Þegar fréttir bárust um að skotið hefði verið á bifreið Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, vaknaði sú hugsun áreiðanlega hjá mörgum, hvort verið gæti að verri tímar væru framundan á Íslandi,“ segir hann. Hann nefnir að eitt sé að fólk skiptist á skoðunum og deili um mál í lýðræðisríki en annað að skoðanaágreiningur leiði til ofbeldisverka.
„Reyndar eru fleiri atvik, sem hafa vakið upp áþekkar hugleiðingar eins og t.d. eins konar innrás í Borgarholtsskóla, þar sem markmiðið var að berja á einstaklingi. Hvað er að gerast? Eru þetta áhrif og afleiðingar ómenningarstrauma frá öðrum löndum?“
Styrmir nefnir að slagsmál karla hér á landi hafi lengi verið viðloðandi okkar fámenna samfélag. Þannig hafi þau eitt sinn verið algeng á skólalóðum í frímínútum milli stráka og á íþrótta- og hestamannamótum fyrir margt löngu.
„En nú eru alvarlegri mál á ferðinni, þar sem hafnaboltakylfum, hnífum og skotvopnum er beitt. Það er rík ástæða til að taka undir með borgarstjóra að þessa þróun verður að stöðva.“