„Ég skil þetta ekki öðru vísi en að einhverjum innan kerfisins sé persónulega í nöp við mig. Það er einhver að leika sér að mér,“ segir athafnamaðurinn Óskar Axelsson í Fréttablaðinu í dag.
Fréttablaðið fjallar í dag um gjaldþrot styrktarsjóðs í minningu móður Axels, Sigurbjargar Axelsdóttur. Sjóðurinn var úrskurðaður gjaldþrota en Sigurbjörg var fyrsti kvenkyns bæjarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar og var tilgangur sjóðsins að styðja við ungmenni með skerta starfsgetu.
Sjálfur hefur Óskar langa reynslu af innflutningi og hafði hann til dæmis flutt inn rafleikfangabíla í samstarfi við Hópkaup sem gekk vel.
„Þegar því samstarfi lauk þá ákvað ég að láta sjóðinn flytja inn slíka bíla enda voru þeir mjög vinsælir. Við fluttum inn tvo gáma, annan á nafni velunnara sjóðsins en styrktarsjóðurinn flutti inn hinn,“ segir Óskar en það var þessi innflutningur sem setti stórt strik í reikninginn.
Tollstjóri neitaði að tollafgreiða gám styrktarsjóðsins á þeim forsendum að hluti bílanna væri ekki með CE-vottun. Óskar segir að hinn gámurinn hafi verið með nákvæmlega sömu vörur en hann fengið að fara í gegn. Þá hafi bílarnir verið í notkun lengi og aldrei borist kvörtun. Sjóðurinn varð fyrir miklu tjóni vegna þessa.
Óskar er ósáttur og segist alls staðar rekast á veggi vegna innflutningsins. „Það er ótrúlegt að setja stein í götu sjóðs sem er að reyna að styrkja ungmenni með skerta starfsgetu,“ segir Óskar.
Nánari umfjöllun um málið á vef Fréttablaðsins.