Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Verða því meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, áfram 4,5 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.
Í tilkynningunni segir að samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum hægði nokkuð á hagvexti á seinni hluta síðasta árs frá því sem hann hafði verið á fyrri hluta ársins. Hagvöxtur hafi verið 4,6 prósent á árinu öllu en í febrúarspá sinni hafði Seðlabankinn gert ráð fyrir að hann yrði 4,3 prósent. Nýlegar vísbendingar um efnahagsumsvif og af vinnumarkaði bendi til þess að spenna í þjóðarbúskapnum haldi áfram að minnka.
Verðbólga var 3 prósent í febrúar og hefur hjaðnað frá því í desember síðastliðnum þegar hún mældist 3,7 prósent. Samkvæmt bankanum vegur þar þyngst að dregið hefur úr áhrifum hækkunar innflutningsverðs vegna gengislækkunar krónunnar á haustmánuðum síðasta árs og að framlag húsnæðis til verðbólgu hefur minnkað. Gengi krónunnar hefur hækkað um tæplega 3 prósent frá febrúarfundi peningastefnunefndar. Enn er þó líklegt að verðbólga aukist eitthvað fram eftir ári en hvað verður er háð niðurstöðu kjarasamninga sem ekki liggur fyrir.
Þá segir að langtímaverðbólguvæntingar heimila og fyrirtækja hafi hækkað en verðbólguálag á skuldabréfamarkaði lækkað. Á alla mælikvarða eru langtímaverðbólguvæntingar enn yfir verðbólgumarkmiðinu. Væntingar um verðbólgu til skamms tíma hafa lítið breyst frá síðasta fundi peningastefnunefndar og því er taumhald peningastefnunnar, eins og það mælist í raunvöxtum Seðlabankans, óbreytt frá fyrri fundi.