Það er stórkostlegt að horfa og hlýða á Þuríði Sigurðardóttir, eina dáðustu söngkonu landsins, segja frá lífi sínu og list í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld klukkan 20:00, slíkum töfrum og ljóma stafar af frásögn hennar og lífsgleði.
Uppeldi hennar í litla bænum á hólnum í Laugarnesi var engu lagi líkt, enda aðstæður þar frumstæðar, hvorki var þar ískápur né bað, svo að Snússa mamma hennar, systir Guðmundar frá Miðdal, fór með telpuna sína í Þvottalaugarnar í Laugardalnum til að þrífa hana og baða. Og pabbi hennar var sér á báti, söngvarinn mikli með skýru röddina, svo elskur að hestum að hann umgekkst þær eins og fegurstu manneskjur, flottur alltaf í tauinu, en túraði á stundum, sem tók nú svolítið á, með engan áhuga á efnum og fjármunum.
Sprenghlægileg er tilviljunin sem togaði hann upp á söngsviðið í fyrsta skipti, fimmtán ára hnátuna, feimnisbælda, sem faldi hógværðina með brosi, en Gulli Bergmann, sú góða goðsögn, auglýsti hana með Lúdósextettnum án þess að hún hefði nokkru sinni samþykkt að syngja með honum, svo hún lét til leiðast, fór – og sló svo rækilega í gegn að eftirleikurinn var ein samfelld sigurganga með helstu hljómsveitum sjöunda og áttunda áratugar síðustu aldar.
Hún rekur samskiptin við hverja dægurlagastjörnuna af annarri; Pálma Gunn, sem hún bjó með í nokkur ár og eignaðist frumburðinn með, en leiðir skildi vegna óreglu Pálma, en sjálf hafði hún engan áhuga á drykkju, minnist líka áranna með Villa Vill á sviði, sem kom til hennar í draumi nokkrum dögum eftir ótímabært andlátið, en þegar hún sagðist vilja snerta hann hafi hann sagt að það væri ekki hægt því hennar tími væri ekki kominn, og rifjar upp ævintýrin með Ragga heitnum Bjarna, því afslappaða eðalmenni, sem hafi nú gert meira úr því en efni stóðu til að hann væri alltaf að gleyma söngtextunum, blessaður, alltaf hæfilega kærulaus.
Þátturinn byrjar klukkan 20:00 í kvöld.