Stutt í að sonur Sigurðar útskrifist af spítala: Ákveðinn í að skrifa bók um áfallið og reynsluna af kerfinu

Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, betur þekktur sem Siggi Stormur, segist vera ákveðinn í að skrifa bók um reynslu sína af kerfinu og það áfall að sjá son sinn berjast fyrir lífi sínu svo vikum og mánuðum skiptir.

„Núna vel á 9. mánuð höfum við fjölskyldan þurft að lifa við að horfa uppá strákinn okkar, 29 ára berjast fyrir lífi sínu. Ég vorkenni okkur ekki þó á reyni. Það er hann sem er veikur og liggur því á LSH. Sárt er hins vegar að kynnast hve vanmáttug við og sumpart læknarnir eru þegar alvarleg veikindi banka uppá, og í þessu tilviki hjá fullkomlega heilbrigðum ungum einstaklingi,“ sagði Sigurður í einlægri færslu á Facebook-síðu sinni á laugardag.

Sigurður opnaði sig um veikindi sonar síns í kringum síðustu jól en um var að ræða fjölkerfa bilun í líffærum; nýrum, brisi og lungum.

Með færslunni birtir hann mynd sem var tekin síðasta jóladag á gjörgæsludeildinni við Hringbraut. Hann segir að starfsfólki þeirrar deildar verði aldrei nóg þakkað undir stjórn yndislegs læknis, Sigurbergs Kárasonar, yfirlæknis gjörgæslunnar.

„Núna tæpum 9 mánuðum eftir áfallið er ekki að sjá annað en að það styttist í að hann geti útskrifast af LSH og mögulega hafið endurhæfingu, hvar svo sem það verður.
En nú er ég ákveðinn í að skrifa bók um þetta áfall og reynslu mína af kerfinu. Það er full ástæða til. Guð geymi ykkur öll,“ segir hann í færslunni að lokum.