Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi, meðal annars fyrir að ráðast á aðstoðarlækni á geðsviði Landspítalans og lögreglumann sem hafði afskipti af honum.
Maðurinn missti stjórn á sér á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi að kvöldi laugardagsins 10. ágúst 2019. Var hann ákærður fyrir að slá þar aðstoðarlækni á geðsviði hnefahöggi í andlitið með þeim afleiðingum að læknirinn hlaut af bólgu og mar hægra megin í andliti auk þess sem það kvarnaðist upp úr tönn.
Þá var hann ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa skallað lögreglumann í andlitið með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut af tvíbrot í nefbeini, skurð á nef, mikla nefblæðingu og bólgu.
Maðurinn var ákærður fyrir fleiri brot, til dæmis fyrir að valda skemmdum á bifreið með því að sparka í hana, akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og án ökuréttinda. Maðurinn var einnig ákærður fyrir gripdeild.
Maðurinn játaði sök fyrir dómi en hann hefur glímt við geðhvarfasýki; depurð, áfengisfíkn og kannabisfíkn. Var það mat geðlæknis að hann væri þó sakhæfur en refsing gæti farið illa með hann og valdið honum vandræðum. „Væri þess vegna brýnt, bæði vegna öryggis hans sjálfs sem og almennings, að hann fengi viðvarandi læknismeðferð, meðhöndlun og aðhald á sjúkrahúsi, a.m.k. næstu tvö árin.“
Fyrir dómi kom fram að maðurinn hefði lítið munað frá atburðunum á bráðamóttökunni. Hann hefði rekið árásirnar til veikinda sinna og tortryggni eða skorts á trausti. Kvaðst maðurinn sjá eftir því enda hefði hann aldrei áður ráðist á fólk og lent í átökum.
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn hefði verið fundinn sekur um tvær líkamsárásir en honum til málsbóta var litið til skýlausrar játningar hans. Rétt þótti að skilorðsbinda fangelsisrefsinguna í tvö ár, ekki síst vegna álits matsmanns að refsing yrði manninum mjög þungbær. Á skilorðstímanum þarf maðurinn að sæta sérstöku eftirliti og umsjón. Þá var manninum gert að greiða sakarkostnað málsins, alls rúmar 1,7 milljónir króna.