„Í ljósi umræðu síðustu vikna er mikilvægt að fordæma svona framkomu lögreglu og skoða hana frekar,“ skrifar leikarinn og tónlistarmaðurinn Sigurbjartur Sturla Atlason á Facebook.
Hann deilir þar frétt Vísis þar greint er frá því að lögreglumaður með lambhúshettu braut tölvuna hjá tónlistarmanninum Ísleifi Eld Illugasyni.
Ísleifur var að skemmta á bjórkvöldi menntaskólanema í sal Gróttu á Seltjarnarnesi. Fjölmennt lið lögreglu mætti á svæðið með mikinn viðbúnað og leysti upp samkvæmið.
„Hann [lögreglumaðurinn] var allt í einu mættur, hrópaði á mig og skipaði mér að hætta að spila. Svo skellti hann aftur tölvunni ansi harkalega og beindi að mér piparúða eða einhverju. Ekki veit ég hvers vegna, það var alveg óskiljanlegt," segir Ísleifur í samtali við Vísi.
„Lögreglan og ráðherra hafa verið að basúna áróðri um gengjastríð á Íslandi og bókstaflega lýst yfir stríði vegna þess – og nú á sko að ganga hart fram og taka á málunum.
Tónlistarmaður verður fyrir því í miðri framkomu að lambhúshettuklæddur lögreglumaður brýtur tölvuna hans, sem jafnframt er hans mikilvægasta vinnutól, og hótar honum ofbeldi með piparúðabrúsa, án þess að tónlistarmaðurinn hafi gert neitt annað en að standa uppi á sviði. Og það á viðburði sem tónlistarmaðurinn er ráðinn til að koma fram á,“ skrifar Sturla.
„Er ekki eðlilegt að fordæma þessa framkomu og krefjast svara? Hér ættu hagsmunasamtök tónlistarmanna að stíga inn í, fordæma framkomu lögreglunnar og krefjast þess að lögreglan endurskoði þessa vinnuferla sína.Yfirgengileg hegðun og eiginlega bara grínlegt,“ segir Sturla.
Hægt er að sjá myndband af lögreglunni fara offorsi hér.