Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ósiðlegt og lostugt athæfi fyrir utan sólbaðsstofu sumarið 2019. Brotið beindist gegn ungri stúlku, starfsmanni sólbaðsstofunnar.
Lögreglu barst tilkynning að morgni laugardagsins 13. júlí 2019 um karlmann sem væri að fróa sér fyrir utan umrædda sólbaðsstofu, við glugga sólbaðsstofunnar, beint fyrir framan sæti starfsmannsins við afgreiðsluborðið. Lögregla handtók manninn skömmu síðar, en hann sagði lögreglu að hann hefði verið að klóra sér í pungnum vegna húðsjúkdóms sem valdi kláða.
Maðurinn hafði verið í ljósatíma áður en atvikið átti sér stað, en starfsmaðurinn sem brotið beindist gegn hafði veitt því athygli að maðurinn var ölvaður þegar hann kom inn á stofuna en þó kurteis og rólegur.
Stúlkan sagði við lögreglu að eftir ljósatímann hefði maðurinn farið út og staðið fyrir utan gluggann við afgreiðslu sólbaðsstofunnar. Hann hefði starað á hana og sett höndina inn um opna buxnaklaufina og viðhaft kynferðislegar hreyfingar. Hann hefði gert þetta í dágóða stund en hún reynt að hunsa hann.
Í málinu lá fyrir myndskeið úr eftirlitsmyndavélum sólbaðsstofunnar auk mynda úr þeim af manninum við glugga stofunnar. Á myndskeiðunum sést hvar maðurinn stendur við gluggann skammt frá sæti starfsmannsins og setur hönd inn um buxnaklaufina. Þá sést maðurinn taka getnaðarliminn í gegnum buxnaklaufina.
Maðurinn neitaði sök, bæði í yfirheyrslu hjá lögreglu og fyrir dómi. Sagðist maðurinn hafa verið sveittur og klístraður eftir ljósatímann og þurft að klóra sér. Það hafi verið augnabliks dómgreindarleysi að taka getnaðarliminn út.
Dómari taldi niðurstöðuna þó vera mjög skýra. „Framburður ákærða um að hann hafi einungis verið að klóra sér og lagfæra liminn og síðan tekið hann út vegna augnabliks dómgreindarskorts þykir fráleitur þegar horft er á myndbandið. Þykir því ekki varhugavert að leggja framburð brotaþola til grundvallar um athafnir ákærða.“
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot mannsins beindist að ungri stúlku og fékk háttsemi mannsins mjög á hana. Þótti hæfileg refsing 60 daga fangelsi, en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.
Auk þess var manninum gert að greiða laun verjanda síns, rúmar 600 þúsund krónur og tæpar 40 þúsund krónur í annan sakarkostnað.