Logi Einarsson, endurkjörinn formaður Samfylkingarinnar, var með ræðu á landsfundi flokksins í dag þar sem hann fór yfir stöðu mála og framtíð flokksins. Hann sagði hlutverk þeirra sem eru í stjórnmálum vera mikilvægt á tímum COVID-19.
Hann talaði gegn aðgerðum ríkisstjórnarinnar á þessum tímum, sérstaklega í efnahagsmálum, og sagði að munurinn milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins kristallaðist þegar litið væri til skattastefnu flokkanna.
„Á meðan við leggjum áherslu á atvinnuskapandi skattalækkanir og að jafna kjörin þá leggur ríkisstjórnin mesta áherslu á minnka álögur á stórútgerðina, og boðar núna lækkun erfðafjárskatts og sérstaka vernd fyrir fjármagnseigendur gegn verðbólgu,“ sagði Logir og bætti við að fyrstu skattalækkanir ríkisstjórnarinnar segðu sína sögu.
Hann sagði enn fremur að enginn annar stjórnmálaflokkur hafi sett fram efnahagsáætlun sem líkist áætlun Samfylkingarinnar. Hann sagði ríkisstjórnina ekki hafa nein svör um hvernig framtíðin verður eftir COVID heldur væru þau bara í miklum makindum.
„En nú vandast hins vegar málið fyrir ríkisstjórnina, þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir, þá er þetta ekki jafn þægilegt og áður. Þá þarf raunverulega pólitíska stefnu, forystu og framtíðarsýn.“
Ekki góð staða hjá hinum flokkunum
Logi sagði að lokum að staðan hjá stjórnarflokkunum væri ekki góð að svo stöddu en hann sagði Vinstri græna ekki hafa komið neinu í framkvæmd og að Framsóknarfólk með laskaða sjálfsmynd skreyti sig með „frjálshyggjufjöðrum“ þegar það styttist í kosningar.
„Sjálfstæðisflokkurinn er sundraður og klofinn, sem er reyndar hætt að sæta tíðindum. Þau íhaldssömustu ganga nú í Miðflokkinn, eitt af öðru, og hörðustu markaðssinnarnir eru farnir í Viðreisn. Það eru engin prinsipp eftir, bara varðstaða um þrönga sérhagsmuni. Millitekjufólk og smærri atvinnurekendur eiga enga málsvara þarna lengur, hvað þá tekjulægstu hóparnir.“
„Stuðningur við Samfylkinguna er eina leiðin að ríkisstjórn þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fær ekki að vera með fingurna í fjármálum ríkisins. Okkar gildi, okkar stefna, okkar forysta, er skýrasti valkosturinn fyrir þau sem vilja fara aðra leið.“
Hægt er að fylgjast með landsfundinum í beinni á heimasíðu Samfylkingarinnar.