Kveðjum og stuðningi rignir nú yfir Jón Jörund Guðmundsson, liðsmann Fjölbrautarskólans í Ármúla í Gettu betur, á samfélagsmiðlum. Þar leggja gríðarmargir þjóðþekktir einstaklingar orð í belg og lýsa flestir yfir vilja til þess að knúsa Jón.
Tilefnið er uppátæki sem varð undir lok Gettu betur keppni Tækniskólans og FÁ í gærkvöldi, þegar Tækniskólinn bar nauman sigur úr býtum í átta liða úrslitum. Jón lét tilfinningar sínar bera sig ofurliði og velti meðal annars pontu sinni um koll.
Líkt og áður segir hefur stuðningi rignt yfir kappann í kjölfarið. Meðal þeirra sem leggja orð í belg eru Egill Helgason, sjónvarpsmaður og útvarpsmaðurinn Máni Pétursson. Báðir óska þeir þess að Jón verði knúsaður.
„Elsku strákurinn í Gettu betur. Við skulum sýna honum skilning og umburðarlyndi. Mann langar eiginlega mest að faðma hann,“ skrifar Egill. Máni skrifar á svipuðum nótum:
„Ég held með þessum Jón Jörundi. Þetta kemur fyrir okkur öll að missa okkur aðeins. Manni líður alltaf djöfullega á eftir.Vona að einhvern knúsi hann þrátt fyrir Covid.“
Gettu betur kanónan Steinþór Helgi Arnsteinsson rifjar upp minningar af sáru tapi sínu í úrslitakeppninni, þar sem hann keppti í liði Borgarholtsskóla gegn Verzló árið 2004.
„Ég finn svo ógeðslega mikið til með honum Jóni Jörundi. Ég tapaði sjálfur þrisvar í Gettu betur og í öll skiptin langaði mig til að bregðast nákvæmlega eins og hann gerði. Þegar við töpuðum á móti Versló í úrslitunum 2004, hegðaði ég mér jafnvel verr en Jón,“ skrifar Steinþór.
Hann rifjar það upp að hann hafi gefið Verzlingum puttann þegar þeir óðu upp á svið til að fagna sigrinum og sagði hann þeim að drulla sér.
„Þegar Markús Örn, útvarpsstjóri, afhenti mér svo blómvönd í verðlaunaafhendingunni, tók ég hann og grýtti honum út í sal, rauk baksviðs og rústaði öllu,“ skrifar Steinþór. Eðlilegt sé að hafa slíkar tilfinningar þegar maður tapar.
Þá sendir Konráð S. Guðjónsson Jóni einnig skeyti og rifjar upp eigin minningar. „Kæri Jón Jörundur. Það er rúmlega ömurlegt að tapa í Gettu betur, en órafjarri því að vera heimsendir.“
Fleiri kveðjur til Jóns og stuðningsorð má lesa hér að neðan:
Elsku strákurinn í Gettu betur. Við skulum sýna honum skilning og umburðarlyndi. Mann langar eiginlega mest að faðma hann.
Posted by Egill Helgason on Friday, 19 February 2021
Þegar Verzlingar unnu og stuðningsfólk þeirra óðu upp á svið til að fagna, gaf ég þeim puttann og sagði þeim að drulla sér. Þegar Markús Örn, útvarpsstjóri, afhenti mér svo blómvönd í verðlaunaafhendingunni, tók ég hann og grýtti honum út í sal, rauk baksviðs og rústaði öllu 2/3
— Steinþór Helgi (@StationHelgi) February 19, 2021
Þannig að mitt reaction var verra. Þegar maður leggur allt sitt í keppni eins og Gettu betur er bara eðlilegt að hafa tilfinningar þegar maður tapar. Ég segi bara áfram Jón Jörundur. Fyrst og fremst vona ég samt að fólk sýni Jóni skilning og tillit, og láti hann í friði 3/3
— Steinþór Helgi (@StationHelgi) February 19, 2021
Ég held með þessum Jón Jörundi. Þetta kemur fyrir okkur öll að missa okkur aðeins. Manni líður alltaf djöfullega á eftir.Vona að einhvern knúsi hann þrátt fyrir Covid.
— Máni Pétursson (@Manipeturs) February 19, 2021
Kæri Jón Jörundur. Það er rúmlega ömurlegt að tapa í Gettu betur, en órafjarri því að vera heimsendir.✌️ pic.twitter.com/lziDCuD4UX
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) February 19, 2021
Ég tapaði í 8-liða úrslitum í #gettubetur 2 ár í röð. Það að læra í 4-5 mánuði til að muna allan andskotann og átta sig á að það væri allt til einskis, er það sem Jón Jörundur sýndi í gærkvöldi.
— Starkaður Pétursson™ (@starkadurpet) February 20, 2021
Djöfullinn sem mig langaði til að gera það sem hann gerði í gær!
Take a bow son! 👏🏻
Þakka mikið fyrir að það voru bara svona 2 með Twitter þegar ég var að kasta pennum, lemja í skjái og bugast eftir töp í GB á sínum tíma. Þetta eru stressandi og ýkt intens aðstæður fyrir unglinga og þetta skiptir þá marga mjög miklu máli.
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) February 19, 2021