Stúdíóíbúð í miðbænum vekur athygli: 163 þúsund krónur fyrir 23 fermetra – Sjáðu myndirnar

Leigu­verð hér á landi hefur verið tals­vert í um­ræðunni undan­farin misseri og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Til eru fjöl­margar grúppur á Face­book þar sem hægt er að aug­lýsa í­búðir til leigu. Ein slík aug­lýsing í Face­book-grúppu þar sem aug­lýstar eru eignir í hverfum 101, 105 og 107 hefur vakið nokkra at­hygli.

Um er að ræða 23 fer­metra stúdíó­í­búð við Berg­staða­stræti í mið­borg Reykja­víkur og er leigu­verðið 150 þúsund krónur á mánuði. Við þetta bætast 13 þúsund krónur fyrir að­gang að neti og notkun á vatni og raf­magni. Sam­tals 163 þúsund krónur. Af myndum að dæma virðist í­búðin vera undir súð á efstu hæð hússins.

Þó nokkrar at­huga­semdir hafa verið settar undir færsluna og í einni segir: „163 þúsund krónur fyrir 23 fer­metra er hálf­gerð græðgi, en græðgi er vin­sæl á Ís­landi.“ Annar bendir á að hann leigi 50 fer­metra íbúð í mið­borg Reykja­víkur og borgi fyrir hana 150 þúsund krónur á mánuði. Enn annar segir að þetta verð sé við­eig­andi fyrir 50-60 fer­metra í­búðir í mið­borginni.

Dæmi hver fyrir sig en skjá­skot úr aug­lýsingunni má sjá hér neðst í fréttinni:

Sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár Ís­lands hefur vísi­tala leigu­verðs á höfuð­borgar­svæðinu lækkað undan­farna mánuði. Sam­kvæmt nýjustu tölunum, sem birtust í lok apríl, var vísi­talan fyrir mars 201,8 stig eftir að hafa farið í 204,5 stig í janúar.

Meðal­leigu­verð á hvern fer­metra í mars í Reykja­vík, á svæðinu vestan Kringlu­mýrar­brautar og á Sel­tjarnar­nesi, var 4.606 krónur fyrir stúdíóíbúðir. Verðið lækkar á hvern fer­metra eftir því sem í­búðirnar eru stærri. Þannig var það 3.247 krónur fyrir 2 her­bergja í­búðir og 2.996 krónur fyrir 3 her­bergja í­búðir.

Upp­lýsingarnar eru að­gengi­legar á vef Þjóð­skrár Ís­lands og byggjast þær á 527 leigu­samningum sem þing­lýst var í mars á þessu ári.