Gabríel Douane Boama, strokufanginn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir, var handtekinn í nótt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynnti þetta nú í morgunsárið.
„Umfangsmiklar aðgerðir lögreglunnar í gærkvöldi og nótt þar sem húsleitir voru gerðar og ökutæki stöðvuð leiddu til þess að strokufanginn sem lýst hefur verið eftir var handtekinn undir morgun. Hann er í fangageymslu lögreglu.“
Í tilkynningu lögreglu kemur fram að fimm önnur hafi verið handtekin í aðgerðum lögreglu og rannsakar hún nú hvort honum hafi verið veitt aðstoð við að losna undan handtöku. Þau eru einnig í fangageymslu lögreglu.
„Þessar aðgerðir eru afrakstur mikillar rannsóknarvinnu og vinnslu á upplýsingum sem lögreglu hefur borist frá almenningi,“ segir í skeyti lögreglu.