„Það er því algjörlega skýrt að þarna er verið að fara á skjön við þær leikreglur sem við höfum sett okkur sem samfélag,“ segir Gunnar Sigurðarson, tengiliður Samtaka iðnaðarins hjá Landssambandi bakarameistara á Íslandi, í samtlai við Fréttablaðið í dag.
Þeir sem eru duglegir á Facebook, til dæmis í hópum eins og Matartips og Brask & Brall, hafa vafalítið tekið eftir því að margir eru að selja gómsætar Sörur nú þegar jólin fara að ganga í garð. Gunnar segist kannast við sölu á Sörum á netinu en segir að samkvæmt lögum sé það bannað, enda óheimilt að reka handiðnað í atvinnuskyni nema hafa tilskilin réttindi og leyfi.
„Það er algjörlega ljóst að í öllum þessum tilvikum er verið að þverbrjóta allt sem snýr að lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, en þau eiga að tryggja neytendavernd og öryggi matvæla enda þessir aðilar ekki með tilskilin starfsleyfi, eins og gildir um alla sem framleiða og selja matvæli hér landi,“ segir hann.
Hann bendir einnig á að um sé að ræða atvinnurekstur og af slíkum rekstri þurfi að greiða skatta og gjöld. Þrátt fyrir að það megi stóref la eftirlit með slíkum brotum, þá veit ég til þess að skattyfirvöld líta þetta grafalvarlegum augum og er ekki hægt að óska neinum að fá bréf eða sektir frá þeim í skóinn,“ segir hann í Fréttablaðinu.