Ragnar Þór Ingólfsson hefur ákveðið að draga framboð sitt til forseta Alþýðusambandsins til baka.
Þetta gaf hann út á þingi Alþýðusambandsins sem hófst í dag enFréttablaðið greinir frá.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar einnig dregið framboð sitt til baka sem varaforseti. Þá hefur einnig Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sem bauð fram til embættis þriðja varaforseta ASÍ hætt við framboð sitt.
Til stóð að kosning um forsetastólinn færu fram á morgun en fari svo að Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar, fari ein fram verður hún sjálfkjörin en hún tilkynnti um framboð sitt nú rétt fyrir helgina. Fréttablaðið náði ekki í Ragnar Þór við vinnslu fréttarinnar.
Eins og áður hefur komið fram sagði Drífa Snædal af sér sem forseti ASÍ í sumar og varð þá ljóst að breytingar yrðu á forystunni. Kristján Þórður Snæbjörnsson, fyrsti varaforseti ASÍ og formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, tók við embætti af henni en hann hefur áður gefið út að hann myndi ekki sækjast eftir embætti forseta heldur fyrsta varaforseta.