Guðmundur Felix Grétarsson, sjálftitlaður handhafi, birtir magnað myndband á Facebook-síðu sinni í dag. Guðmundur fékk græddar á sig tvo handleggi fyrir aðeins um tíu mánuðum síðan og deilir frétt á Facebook-síðu sinni frá franska fjölmiðlinum France 3 sem sýnir stórbrotinn árangur hans í kjölfar aðgerðarinnar.
Í mynndbandinu sést Guðmundur meðal annars gæða sér á mandarínu og skrifa nafn sitt á blað, eitthvað sem hann gat einungis látið sig dreyma um fyrir stuttu síðan.
Björninn er ekki unninn þó vel gangi en Guðmundur hefur greint frá því að það getið tekið líkama hans mörg ár að venjast höndunum og jafnvel getur það farið svo að hann missi hendurnar. Þó kveðst hann sjá betri og betri árangur í hverri vikunni sem líður.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið en smella þarf á færslu Guðmundar hér að neðan til þess. Sjón er sögu ríkari: