Stór­bruni í gisti­heimili: „Mér þykir vænt um börnin mín og það er ömur­­legt að þau þurfi að standa í þessu“

Hörgs­land gisti­heimili rétt austan við Kirkju­bæjar­klaustur stendur í ljósum logum um þessar mundir og vinnur slökkvi­liðið að því að slökkva eldinn. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Börkur Hrólfs­­son leið­­sögu­­maður átti leið fram hjá og segir í sam­tali við Frétta­blaðið að mikill við­búnaður er á svæðinu. Hann keyrði fram­hjá um fjögur leytið og þá var slökkvi­liðið, að hans mati, að hefja að­­gerðir á vett­vangi en að minnsta kosti tveir dælu­bílar eru á svæðinu.

„Þetta er gisti­­staður. Það er þarna fullt af húsum sem eru leigð til ferða­manna og svo er eitt stórt hús sem er með mót­töku, veitinga­­stað og fleira,“ segir Börkur.

Hann var að koma frá Höfn og á leið til Reykja­víkur. „Ég geri ráð fyrir því að aðal­­hættan sé að það fari neistar í hin húsin án þess ég viti ná­­kvæm­­lega um það en ég myndi telja það þyrfti að verja önnur hús enda timbur­hús allt í kring,“ segir Börkur.

Hann var að koma frá Höfn og á leið til Reykja­víkur. „Ég geri ráð fyrir því að aðal­hættan sé að það fari neistar í hin húsin án þess ég viti ná­kvæm­lega um það en ég myndi telja það þyrfti að verja önnur hús enda timbur­hús allt í kring,“ segir Börkur.

Ragnar Johan­sen eig­andi Hörgs­lands er staddur í Taí­landi um þessar mundir. Hann segir að engin hafi slasast í eldinum, en hann segir að það sé ömur­leg upp­lifun að þurfa sjá brunann í gegnum símann.

„Veitinga­staðurinn brann til kaldra kola. Þetta er alveg ömur­leg upp­lifun. Það er búið að vera frost núna síðan í byrjun desember og það er verið að þíða inn­tök og alls ­kyns vanda­mál vegna þess að það er allt frosið. Svo er verið að reyna að þíða þetta þá hefur senni­lega eitt­hvað of­hitnað. Þannig kviknar eldur,“ segir Ragnar.

„Það er allt í lagi með fólkið, en ég hef mestar á­hyggjur af því að sonur mín og dóttir fari að kenna sér um að þetta skeði, af því að ég er ekki til staðar til að út­skýra þetta fyrir þeim,“ segir Ragnar, en börnin hans sjá um reksturinn á Hörgs­landi.

„Þetta er ömur­leg upp­lifun. Mér þykir vænt um börnin mín og það er ömur­legt að þau þurfi að standa í þessu,“ segir Ragnar.

Myndband af brunanum má sjá hér að neðan.

Fréttablaðið/Börkur Hrólfsson/samsett