Verð á matvöru hefur að meðaltali hækkað um sjö prósent frá því kórónaveiran fór að setja mark sitt á samfélagið á útmánuðum síðasta vetrar.
Þetta kemur fram í reglubundnu verðlagseftirliti Alþýðusambands Íslands – og segir Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur sambandsins í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld að hækkunin sé óvanalega mikil á svo stuttum tíma, miðað við fyrri ár.
Hún segir að forkólfar matvöruverslananna geti ekki réttlætt þessa hækkun með veikari krónu það sem af er ári, en gengi hennar hefur lækkað um sextán prósent frá áramótum. Inn í þann reikning verði nefnilega að taka að meðaltali 20 prósenta söluaukningu í umræddum búðum frá því kórónaveiran fór á kreik sem neytendur ættu að njóta, svo og lækkun á verði margra aðfanga, svo sem hrávöru og eldsneytis, sem hefði átt að leiða til minni framleiðslukostnaðar á innlendum matvælum.
Það sé einkar athyglisvert, segir Auður Alfa, að veikara gengi skili sér ávallt í hærra verði á innfluttri matvöru hér á landi, en vöruverðið lækki aftur á móti ekki ef gengið styrkist. Svo bætist það við á þessu ári að fordæmalaus söluaukning matvöruverðsverslananna skili sér ekki til neytenda heldur þvert á móti í óvanalega mikilli verðhækkun á nauðsynjum.