Íslendingar munu að stærra leyti en nokkru sinni fyrr kaupa jólagjafirnar í íslenskum netverslunum. Rúmleg 58 prósent segjast nú líklega munu sækja jólagjafirnar þangað miðað við 22 prósent, viðmiðunarárið 2017. Mun færri ætla að versla í erlendum netverslunum eða 28,8 prósent sem er nánast eins og árið 2017.
Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar greiningar, sem byggir á gögnum frá Zenter, MMR og Meniga. Kjartan Sigurðsson hjá Verslanagreiningu segir í viðtali í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld að fjórar stærstu netverslanir landsins séu nú Heimkaup sem velti rúmlega 400 milljónum í nóvember, Krónan/Snjallverslun með tæplega 200 milljóna veltu í sama mánuði, Nettó/Aha með næstum 300 milljóna veltu. Engin af þessum stóru kemst þó nærri Elko sem velti yfir 780 milljónum í nóvember, fóru úr 205 milljónaveltu frá mánuði fyrr.
Í úrtakinu voru 2100 einstaklingar, handahófskennt úrtak úr Þjóðskrá, 18 ára og eldri. Svarhlutfall var 52 prósent.