Stóra spurningin: Hvaða götumynd myndir þú frekar vilja?

Arkitektúruppreisnin á Íslandi býður upp á áhugaverða samanburðarmynd á Facebook síðu sinni. Þar má sjá ný byggt fjölbýlishús í Nacka í Svíþjóð og svo fjölbýlishús í Kópavogi.

„Svona eru ný fjölbýlishús byggð í borginni Nacka í Svíþjóð. Litríkar og fallegar byggingar og hugsað til þess að fólki líði vel í lífvænlegu og manneskjulegu umhverfi,“ segir í textanum.

„Ef svona götumynd yrði byggð á Íslandi, myndir þú kjósa hana framyfir það sem er til dæmis verið að byggja í Sunnusmára í Kópavogi?“