Stofnaður hefur verið styrktarsjóður fyrir Eddu Rún Ragnarsdóttur og fjölskyldu hennar. Edda Rún hefur verið meðal fremstu knapa landsins mörg undanfarin ár en hún féll af hestbaki í maí síðastliðnum og slasaðist.
Hestafréttir fjalla um þetta.
Markmið sjóðsins er að styðja fjárhagslega við bakið á Eddu og fjölskyldu hennar, en stjórn sjóðsins mun taka ákvörðun um framlög úr honum eftir fjárhagslegum þörfum fjölskyldunnar hverju sinni.
„Eignum sjóðsins verður varið til hvers kyns framfærslu Eddu Rúnar og fjölskyldu hennar, til kaupa á eignum sem tengjast þörfum hennar og fjölskyldu hennar á hverjum tíma og eftir atvikum til niðurgreiðslu á skuldum fjölskyldunnar. Við hvetjum alla til að styðja og styrkja við Eddu Rún og fjölskyldu hennar í þeirri baráttu sem framundan er.“
Þá segir í frétt Hestafrétta að knapar Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum muni keppa til stuðnings Eddu Rúnar á lokamóti deildarinnar næstkomandi laugardag á Brávöllum á Selfossi. Munu knapar bera armband í töltinu og klæðast bolum í skeiðinu merktum „Fyrir Eddu“.
Hægt er að styðja málefnið á vef Tix, en á vef Hestafrétta segir:
„Öll framlög eru þegin af þakklæti og munum að margt smátt gerir eitt stórt. Frjáls framlög og fyrirtæki: banki 0325-26-006402 kt: 640206-0710.“