Fréttir og tengt efni hjá Stöð 2 verður aðeins aðgengilegt áskrifendum frá og með 18. janúar næstkomandi, en í 34 ár hafa kvöldfréttir Stöðvar 2 átt nokkuð veigamikinn sess í hjörtum fréttaþyrstra Íslendinga.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem barst frá fyrirtækinu í morgun. Í tilkynningunni er bent á að á þeim 34 árum sem liðin eru síðan kvöldfréttirnar hófu göngu sína hafi margt breyst.
„Stöð 2 hefur verið leiðandi og ætlar sér að vera það áfram. Frá og með 18. janúar verða kvöldfréttir Stöðvar 2 aðeins aðgengilegar áskrifendum og þannig verður grundvöllur fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar tryggður til framtíðar. Fréttir verða áfram öllum aðgengilegar í beinni útsendingu á Bylgjunni og birtast í formi myndbrota á Vísi eftir að útsendingu lýkur á Stöð 2.
Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2, lítur á breytinguna sem sóknaraðgerð og Þórir Guðmundsson, ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, segir að breytingin muni gera fréttastofunni kleift að standa vörð um öfluga fréttaþjónustu í sjónvarpi.
„Breyttar aðstæður kalla á nýjar áherslur í fjölmiðlun en það sem breytist ekki er áhersla okkar á traust, vandvirkni og nálægð við fólk. Fréttastofan verður því áfram leiðandi í miðlun frétta – á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni,“ segir Þórir meðal annars.