Stjörnurnar furðu slegnar á háu verðlagi á Íslandi – Þetta borgaði hún fyrir núðlurnar

Mörgum þeirra útlendinga sem heimsækja Ísland þykir verðlag heldur hátt hér á landi. Það er ekki úr lausu lofti gripið enda Ísland iðulega komist hátt á listum yfir dýrustu lönd heims.

Raunveruleikastjörnurnar Azah og Derek X, sem keppa í raunveruleikaþættinum Big Brother, hafa bæði heimsótt Ísland eins og þau komust að í samræðum sínum í þættinum fyrir skemmstu. Azah og Derek heimsóttu Ísland árið 2017 - sitt í hvoru lagi - og voru sammála um að verðlag hér væri nokkuð hátt.

Fréttablaðið greindi frá þessu en í þættinum segir Azah að hún hafi heimsótt landið að vetri til og tekur Derek undir. „Mjög dýrt!“ segir Azah og bætir við að hún hafi borgað um 20 dollara fyrir skál af núðlum, en á núverandi gengi jafngildir það rétt rúmum 2.500 krónum.

Samkvæmt tölum Eurostat, Hagstofu Evrópu, sem gefnar voru út í fyrra kom fram að Ísland væri dýrasta land Evrópu og það þriðja dýrasta í heimi. Var verðlag hér 66 prósentum hærra en í öðrum Evrópulöndum árið 2018.