„Ég lærði það hvernig er að upplifa það að fólk tali mjög illa um mann,“ sagði stjörnusérfræðingurinn Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, í hlaðvarpsþættinum Snæbjörn talar við fólk. Í þættinum ræðir hann um viðbrögðin sem hann fékk eftir að hafa talað niður flugelda, var hann úthúðaður eftir færslu á Twitter.
„Hálfviti og aumingi og dreptu þig og skjóttu þig auminginn þinn og hoppaðu upp í rassgatið á þér fíflið þitt og drullaðu þér bara eitthvert annað og eitthvað svona,“ sagði Sævar. Hann lætur það ekki bíta á sig. „mér er alveg sama þegar fólk segir eitthvað svoleiðis, það hefur engin sérstök áhrif á mig. Það hefur hinsvegar meiri áhrif á ástvini manns.“ Þar á meðal kærustu, foreldra og börnin hans.
Sævar Helgi er mikill umhverfisverndarsinni og er mengunin ástæðan fyrir andstöðu hans við flugelda.
Því miður ekki mjög saklaus skemmtun. Kaupið rótarskot og styrkið björgunarsveitir ríflega án þess að fá eitthvað í staðinn. Sleppum flugeldum og öndum léttar í hreinna umhverfi https://t.co/AFsrCbhjEw
— Sævar Helgi Bragason (@saevarhb) December 29, 2020