Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur og sjónvarpsmaður er gáttaðu á nýju banni almannavarna gegn því að börn yngri en 12 ára gangi að nýjum gosstöðum við Meradali. Hann er ekki sá eini ef marka má athugasemdir við Twitter færslur hans um málið.
„Ég held það sé hægt að segja að þetta sé tímabundin ákvörðun þangað til annað kemur í ljós,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna í samtali við Fréttablaðið fyrr í dag vegna ákvörðunarinnar sem virðist vera ansi umdeild.
„Það er gott veður. Spáin er góð. Við búum okkur vel. Erum vel skóuð og klædd, með nesti og öryggisbúnað í bakpoka. Við löbbum af stað og skiljum næstum tólf ára dreng eftir í bílnum því einhver hefur ákveðið að okkur sé ekki treystandi til að fara í göngutúr með honum,“ skrifar Sævar og lætur fylgja með broskalla sem eru spánskir á svip.
Katrín Atladóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur orð í belg:
„Minn 9 ára á meira erindi í þennan göngutúr en svona 90% fullorðinna.“
Ásgeir Jónsson nokkur svarar Sævari: „Þetta er slappasta "lausnin". Honum Nonna er ekki treystandi þannig að bönnum öllum bekknum.“
Sævar svarar til baka: „Blóðþrýstingurinn í mér hækkar þegar verið er að meina vel útbúnum krökkum í fylgd foreldra frá því að sjá eitt glæsilegasta sjónarspil náttúrunnar. Ferðin sem við feðgarnir fórum í fyrra, þar sem við gengum lengri heildarvegalengd um sama svæði, varð að okkar ljúfustu minningu.“