Stjórnarþingmaður vill að ríkið taki yfir SÁÁ: „Fullkomlega óeðlilegt“

Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, vill að ríkið taki yfir rekstur meðferða SÁÁ. Jódís er sjálf fyrrum skjólstæðingur SÁÁ en hún sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að starfsmaður samtakanna hafi misnotað hana þremur árum áður en hann tók á móti henni við komuna í meðferð. Viðkomandi sé enn starfandi á vegum samtakanna. Hún ætlar ekki að nafngreina:

„Ég ber enga skömm, ég þarf engri skömm að skila. Skömmin er alfarið hans og það er þá hans og þeirra sem innanbúðar vita um stöðuna að taka ákvörðun um að stíga fram og taka ábyrgð.“

Hún sagði í þættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag að hún vill að ríkið taki yfir Vog og aðra starfsemi samtakanna:

„Það er kannski eðlilegt að fá einkaaðila til að sinna afmörkuðum verkefnum fyrir ríkið en það að heill málaflokkur, sem eru fíknisjúkdómar, séu í höndum félagasamtaka, það finnst mér fullkomlega óeðlilegt,“ sagði Jódís.