„Stjórnar­skrár­fé­lagið er virðu­legt nafn á sér­trúar­hópi“

„Það sýnir á­gæt­lega yfir­ganginn í sér­trúar­söfnuðinum sem kallar sig Stjórnar­skrár­fé­lagið hvernig hann bregst við því þegar þeir sem sjá um eignir Stjórnar­ráðsins þrífa burt krot af veggjum þess,“ segir í stak­steinum Morgun­blaðsins í dag.

Þar er fjallað um vegglista­verkið sem fjar­lægt var af vegg við hús­næði sjávar­út­vegs­ráðu­neytisins á Skúla­götu, tveimur dögum eftir að það var málað. Á veggnum var spurt hvar nýja stjórnar­skráin væri.

Stak­steina­höfundur Morgun­blaðsins sýnir gjörningnum lítinn skilning eins og glögg­lega má lesa. Þar er Stjórnar­skrár­fé­laginu fundið flest til for­áttu og fær RÚV einnig væna pillu. Stak­steinar Morgun­blaðsins eru ekki merktir höfundi en Davíð Odds­son, fyrr­verandi for­maður Sjálf­stæðis­flokksins, er rit­stjóri blaðsins sem kunnugt er.

„Ó­prúttinn veggja­krotari hafði málað slag­orð um nýja stjórnar­skrá á vegg sem hann átti ekki og án leyfis og þegar eig­andinn þreif vegginn voru við­brögð formanns Stjórnar­skrár­fé­lagsins að for­dæma þrifin, ekki veggja­krotið!“

RÚV fær það reglu­lega ó­þvegið í stak­steinum og er frétta­flutningur þess af málinu gagn­rýndur.

„At­hygli vakti líka að Ríkis­út­varpið birti frétt um málið þar sem ríkis­stofnunin kallaði þessi sjálf­sögðu við­brögð þeirra sem hafa um­sjón með eignunum „þrifa­æði“ í fyrir­sögn. Þessi furðu­lega ríkis­stofnun er auð­vitað gengin í Stjórnar­skrár­fé­lagið og kemur út af fyrir sig ekki á ó­vart að þessir hópar sam­einist, en hversu við­eig­andi er það að skatt­fé sé notað til að af­flytja fréttir af þrifum á eigum skatt­greið­enda?“

Þá spyr stak­steina­höfundur hvort eigna­spjöll verði varin í nýju stjórnar­skránni í stað eigna­réttar.

„Stjórnar­skrár­fé­lagið er virðu­legt nafn á sér­trúar­hópi sem hefur stað­fest ein­kenni sín sem slíkur með því að birta mynd­skeið af fundi sínum þar sem fundar­gestir kyrja ein­hverja möntru um að þeir strjúki stórum ís­mola blítt um leið og þeir ganga að honum og leggja hendur yfir hann. Fólk má vita­skuld leika sér með ís­mola eins og því sýnist, þó að það verði ekki trú­verðugra fyrir vikið, og það má berjast fyrir nýrri stjórnar­skrá, en verða eigna­spjöll varin í nýju stjórnar­skránni í stað eignar­réttarins eins og nú er?“